Síðustu vikur hafa vextir breyst lítillega. Birta, LÍVE, LSR
og Stapi lífeyrissjóður hafa allir lækkað breytilega vexti á
verðtryggðum lánum. Hins vegar hefur LÍVE hækkað óverðtryggða
fastvexti um 0,24%, og nýlegar verðbólgutölur gefa til kynna
að óverðtryggðir vextir muni hækka hjá fleirum.
Borgar sig að skipta yfir í óverðtryggt?
Verðtryggð lán eru þau vinsælustu á Íslandi, enda bjóða þau
upp á lægstu afborganirnar. En verðbólga getur farið illa með
fjárhag þeirra sem taka slík lán. Skoðum hvort það borgi sig
að skipta yfir í óverðtryggt miðað við aðstæður í dag.
Almenni og Frjálsi lækka verðtryggða vexti
Á síðustu vikum hafa Almenni og Frjálsi lífeyrissjóðirnir
lækkað breytilega vexti á verðtryggðum lánum. Almenni lækkaði
úr 2,74% niður í 2,67%, og Frjálsi lækkaði úr 3,00% niður í
2,72%.
Vinsælustu húsnæðislánin: tegundir og veitendur
Herborg.is hefur nú fengið 50 þúsund heimsóknir frá opnun í
september. Með því að skoða hegðun gesta í þessum heimsóknum
má sjá hvaða tegundir lána og lánveitendur njóta mestra
vinsælda. Það gefur vísbendingu um mikilvægustu þættina þegar
kemur að því að velja húsnæðislán.
Fjórir lækka vexti á nýju ári
Eftir áramótin hafa fjórir lánveitendur lækkað vexti á lánum
sínum: Almenni, Gildi, LÍVE og LSR. Allir lækkuðu breytilega
vexti á verðtryggðum lánum, en auk þess lækkaði almenni
breytilega vexti á óverðtryggðum lánum, og Gildi lækkaði bæði
fasta vexti af verðtryggðum lánum og breytilega vexti af
óverðtryggðum lánum.
Nýtir þú skattfrjálsar afborganir af húsnæðisláninu?
Nú þegar árið er að klárast er góður tímapunktur til að fara
yfir persónulegu fjármálin. Þegar kemur að húsnæðisláninu er
hægt að spara hraðar með því að nýta sér skattaafslátt sem
stjórnvöld bjóða upp á. Þessi afsláttur var hluti af
Leiðréttingunni og er í formi úrræðis sem kallast
skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar.
Litlar breytingar á vöxtum
Síðustu vikur hafa vextir lítið breyst. Seðlabankinn hélt
stýrivöxtum óbreyttum í byrjun desember, en ákvarðanir bankans
veita sterka vísbendingu um þróun á húsnæðislánum í kjölfarið.
Fasteignakaup: þetta þarftu að vita
Fyrir flesta eru fasteignakaup mikilvægasta fjárfesting
lífsins. Hagstæð kaup á góðri eign skila ávinningi í áratugi á
meðan mistök í kaupferlinu geta kostað margar milljónir þegar
uppi er staðið. Það er því sjaldan jafn mikilvægt að vanda vel
til verka. Hér eru þau atriði sem skipta mestu máli þegar
fasteign er keypt.
Brú breikkar bilið
Brú lífeyrissjóður greindi frá því í síðustu viku að
óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára muni lækka
úr 5,76% niður í 5,53% frá og með 1. janúar næstkomandi. Með
breytingunni breikkar Brú bilið á milli sín og næsta
lánveitanda þegar kemur að vaxtakjörum.
Bankarnir bjartsýnir á hækkun fasteignaverðs
Íslandsbanki og Arion banki gáfu út nýjar spár um þróun
íbúðaverðs í síðustu viku. Báðir bankarnir spá áframhaldandi
hækkun íbúðaverðs á næsta og þarnæsta ári, en þó minni
hækkunum en raunin hefur verið á þessu ári.
Vextir á hreyfingu
Fjórir lánveitendur hafa breytt vöxtum á verðtryggðum lánum
með breytilega vexti á síðasta hálfa mánuðinum. Birta og
Frjálsi lækkuðu vexti um 0,32%, LÍVE lækkaði um 0,03% og
Almenni hækkaði um 0,06%. Þá hafa bankarnir allir lækkað vexti
nokkuð á óverðtryggðum lánum á síðustu viku í kjölfar þess að
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti.
Munu óverðtryggðir vextir hækka eða lækka?
Óverðtryggð fastvaxtalán eru mest skoðuðu lánin á Herborgu
frá því að síðan opnaði. Þegar slík lán eru tekin skiptir
tímasetningin miklu máli. Ef vextir lækka eftir að slíkt lán
er tekið getur það reynst kostnaðarsamt. En ef vextir hækka er
lánið strax þeim mun hagstæðara. En hvort er líklegra að
gerist á næstunni? Munu vextir hækka, lækka, eða standa í
stað?
Almenni lækkar vexti á öllum lánum
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins ákvað í gær að lækka vexti á
öllum þremur tegundum húsnæðislána sem eru í boði. Sjóðurinn
er nú meðal þeirra lánveitenda sem veita bestu kjörin þegar
kemur að verðtryggðum lánum.
Endurfjármögnun: reiknaðu þinn sparnað hér
Hvenær borgar sig að endurfjármagna húsnæðislán? Þessi
spurning hefur verið svo algeng hjá notendum Herborgar.is að
það er kominn tími til að gera hverjum og einum kleift að
svara þessari spurningu fyrir sig.
LÍVE hækkar vexti
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LÍVE eða LV) hækkaði vexti á
bæði verðtryggðum og óverðtryggðum lánum í síðustu viku.
Breytilegir verðtryggðir vextir hækkuðu úr 2,83% upp í 2,89%
og fastir óverðtryggðri vextir til þriggja ára hækkuðu úr
5,72% upp í 6,09%.
Frjálsi lokar dyrunum: ekki lengur í boði að endurfjármagna
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem býður hagstæðustu
óverðtryggðu fastvaxtalánin í dag, hefur hert útlánareglur
sínar. Nú er ekki lengur hægt að taka húsnæðislán hjá sjóðnum
til að endurfjármagna lán annars staðar frá. Þá lækkaði
sjóðurinn hámarkslánshlutfall úr 75% niður í 70% af
markaðsvirði.
Jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?
Nær allir lánveitendur bjóða upp á tvo valmöguleika þegar
kemur að því að greiða af nýju íbúðarláni: jafnar greiðslur
eða jafnar afborganir. Þessir tveir valmöguleikar eru oft
settir fram sem jafngildir. Í reynd henta þeir mjög
misjafnlega fyrir þá sem taka lán.
Verðtryggt eða óverðtryggt: hvort er betra?
Þetta er algengasta spurning gesta frá því að Herborg.is
opnaði fyrir viku síðan. Þótt stuttlega sé farið yfir muninn á
ólíkum lánategundum undir
Spurt og svarað er
tilefni til að fara betur yfir muninn á þessum lánum. Það
getur hjálpað til við valið þegar kemur að næstu
endurfjármögnun eða íbúðarkaupum.
LSR lækkar vexti í 2,77%
Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna (LSR) lækkaði í dag
breytilega vexti á verðtryggðum húsnæðislánum niður í 2,77%.
Sjóðurinn býður nú lægstu vextina af öllum þegar kemur að
þessari tegund húsnæðislána. Fyrir breytinguna var
Lífeyrissjóður verslunarmanna (LÍVE) með lægstu vextina, sem
eru 2,83%, en hann er nú kominn í annað sætið.